Þorskalýsi í flöskum

Hrein hollusta með háu hlutfalli af fjölómettuðum fitusýrum, auðug af A- og D- vítamínum og með viðbættu E-vítamíni. Þorskalýsi fæst óbragðbætt og með frískandi sítrónubragði.

Þorskalýsi inniheldur A- og D-vítamín sem styrkja vöxt tanna og beina, hafa góð áhrif á sjónina og byggja upp viðnám gegn ýmsum kvillum. Það er auðugt af omega-3 fitusýrum og víða um heim er verið að rannsaka ítarlega áhrif þeirra á ýmsa sjúkdóma, svo sem sóríasis, astma, hjarta-, geð- og gigtarsjúkdóma. Niðurstöður rannsóknanna hafa vakið mikla athygli og sýna að fitusýrurnar koma líkamanum til góða á mörgum sviðum. Þær skýra hollustu lýsisins sem löngum hefur verið kunn meðal Íslendinga.

Þorskalýsi er einnig góður D-vítamíngjafi og stöðugt fleiri álitsgjafar í næringar- og heilsufræðum benda á nauðsyn þess að neyta þorskalýsis til að tryggja nægjanlegt magn þessa mikilvæga vítamíns, ekki síst til að viðhalda beinþéttni.

Þorskalýsi er framleitt úr íslenskri lifur sem safnað er frá bátum og skipum hvar sem er á landinu.

Frekari upplýsingar: consumer@lysi.is

Næringarupplýsingar

Innihald í ráðlögðum neysluskammti

Börn 1-5 ára 1 teskeið (5 ml) á dag NV*
A-vítamín 230 µg 29%
D-vítamín 10 µg 200%
E-vítamín 4,6 mg 38%
6 ára og eldri 2 teskeiðar (10 ml) á dag NV*
A-vítamín 460 µg 58%
D-vítamín 20 µg 400%
E-vítamín 9,2 mg 77%

Innihald:
Þorskalýsi, E-vítamín (d-alfa-tókóferýl asetat), A-vítamín (retínól palmítat), D-vítamín (kólekalsiferól).

*Hlutfall af næringarviðmiðunargildi fyrir fullorðna samkvæmt reglugerð.
Embætti landlæknis ráðleggur 10 µg af D-vítamíni á dag fyrir börn yngri en 10 ára, 15 µg fyrir 10-70 ára og 20 µg fyrir 71 árs og eldri.

Næringargildi í 10 ml

  10 ml
Orka 340 kJ/81 kkal
Fita 9,2 g
Mettuð fita 1,6 g
Einómettuð fita 4,6 g
Fjölómettuð fita 3,0 g
Þar af Omega-3 fitusýrur 2160 mg
EPA 690 mg
DHA 920 mg
A-vítamín 460 µg
D-vítamín 20 µg
E-vítamín 9,2 mg