Omega-3 forte

Omega-3 forte er þykkni sem inniheldur meira magn af fitusýrunum EPA og DHA en aðrar Omega-3 vörur frá LÝSI. Fitusýrurnar eru okkur lífsnauðsynlegar sem þýðir að líkaminn getur ekki sjálfur framleitt þær. Þess vegna er mikilvægt að fá þær úr fæðu eða fæðubótarefnum.

Víða um heim er verið að rannsaka áhrif Omega-3 fitusýranna, EPA og DHA, á ýmsa sjúkdóma, svo sem hjartasjúkdóma, geðsjúkdóma og gigtarsjúkdóma. Áhrif á ónæmiskerfið hafa einnig verið rannsökuð. Til dæmis hefur Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna (FDA) komist að þeirri niðurstöðu að neysla á Omega-3 fitusýrum úr lýsi dragi úr líkum á að þeir sem hafa fengið kransæðasjúkdóm fái hann aftur. Einnig telur eftirlitið líkur á að heilbrigt fólk sem neytir Omega-3 fitusýra úr sjávarfangi eigi síður á hættu að fá kransæðasjúkdóma. 

Í Omega-3 forte eru ekki A- og D- vítamín og því er óhætt fyrir þá sem taka lýsi að nota Omega-3 forte á sama tíma.

Frekari upplýsingar: consumer@lysi.is

Næringarupplýsingar

Ráðlagður neysluskammtur

Fullorðnir 1 perla á dag 

Innihald:
1000 mg omega-3 fiskiolía, gelatín (nautgripa), rakaefni (glýseról), vatn, þráavarnaefni (náttúruleg tókóferól).

Næringargildi í einni perlu

  1 perla
Samtals omega-3 fitusýrur 620 mg
EPA** 310 mg
DHA** 205 mg
**Etýlesterar